Vottanir og viðurkenningar

MótX er alhliða byggingafélag með víðtæka reynslu í nýbyggingu fasteigna. Félagið leggur áherslu á gæði, góða þjónustu og græn viðmið.

Umhverfisvottun - Svanurinn

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna. Meginmarkmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og þeirra sem nota bygginguna eftir að hún er tekin í notkun.

Við uppbyggingu á Svansvottuðu húsnæði eru m.a. gerðar kröfur um litla orkunotkun, notkun á skaðlegum efnum er ekki leyfileg, góð innivist og hljóðvist, gæðastjórnun í byggingarferlinu, rekstrar- og viðhaldsáætlun fyrir líftíma byggingar.

Uppbygging á fyrsta Svansvottaða verkefninu á vegum MótX hófst árið 2021. Í dag eru bæði Hringhamar 9-19 og Hringhamar 31-33 með Svansvottun eða í Svansvottunarferli og stefnt er að því að byggingaverkefnið að Hringhamri 27-29 verði einnig Svansvottað.

Nánar má kynna sér hvað er á bak við Svansvottað húsnæði hér: svanurinn.is/frettir/hvad-er-a-bakvid-svansvottad-husnaedi

Hver er ávinningur kaupenda af Svansvottun?

Ávinningur kaupenda af því að kaupa Svansvottaðar íbúðir er margvíslegur, bæði fjárhagslegur og felst einnig auknum gæðum. Vissulega fylgir því aukakostnaður fyrir byggingaraðila að byggja húsnæði sem að hljóta skal Svansvottun. Engu að síður eru þær Svansvottuðu íbúðir sem að MótX hefur byggt til þessa í Hamraneshverfinu í Hafnarfirði á sambærilegu verði við aðrar íbúðir í hverfinu. Má það þakka hagstæðum innkaupum en einnig stuðningi Hafnarfjarðarbæjar sem að endurgreiðir hluta lóðagjalda til þeirra byggingaraðila sem að byggja vottað húsnæði.

Óvíst er hvort að framhald verður á þessum stuðningi bæjarins við Svansvottuð verkefni og því óvissa um verðþróun á slíku húsnæði.

Orkunýting

Íbúðir þurfa að standast kröfur um orkunýtingu sem að getur skilað sér í lægri orkureikningi heimilisins og lægri kostnaði við rekstur sameigna. Liður í þessu eru loftþéttimælingar á fullbúnum íbúðum en þéttari íbúðir draga úr hitatapi, auk þess sem að þétt íbúð minnkar hættu á lekum í verstu vatnsveðrum. Loftræstikerfi í hverri íbúð fyrir sig tryggir endurvarmavinnslu á hita inni í íbúðunum sem að aftur sparar hitunarkostnað.

Birtustig

Aukin kraftur hefur færst í umræðu um birtustig í íbúðum, einkum eftir að farið var að byggja þéttar en áður á ýmsum byggingarreitum á höfuðborgarsvæðinu. Við hönnun íbúðarhúsnæðis sem á að fá Svansvottun er gerð greining á birtustigi og ákveðnar kröfur gerðar til að tryggja birtu í vistarverum og stærðir glugga síðan ákveðnar út frá því. Með réttu samspili dagsbirtu og lýsingar nást fram aukin gæði.

Hljóðvist

Gerð er krafa um góða hljóðvist í Svansvottuðum íbúðum. M.a. eru kröfur um gæði og frágang gólfefna til að hindra að hljóð berist á milli íbúða. Bætt hljóðvist er ávísun á betri innivist.

Rakavarnir

Rakavarnir eru mikilvægur þáttur í Svansvottun. Því fylgir mikill kostnaður að fara í viðgerðir vegna rakaskemmda. Rakaskemmdir og mygla skapa auk þess hættu fyrir heilsu íbúanna. Loftræstikerfi íbúðanna sér um að soga raka loftið frá böðum, þvottahúsum og eldhúsum og dæla síuðu lofti inn í vistarverur, bæði inn í herbergi og stofu. Þannig endurnýjast loftið í íbúðunum án þess að opna þurfi glugga.

Í rakavarnaráætun sem fylgt er á byggingartíma er fylgst með útþornun á steypu til að tryggja að raki í steypu og öðrum byggingarefnum sé undir þeim mörkum sem t.d. mygla getur náð sér á strik við afhendingu íbúðar, auk þess sem að litlar líkur eru á að parket sé lagt á gólf sem að ekki hefur þornað nægilega.

Efni og tæki

Allar íbúðir frá MótX eru búnar loftræstingu þar sem loft á leið út er notað til þess að hita upp loft á leið inn. Þetta tryggir ferskt, ryklaust andrúmsloft ásamt því að lækka hitakostnað. Sameignir eru einnig búnar hreyfiskynjurum til að spara orku.

Allur úrgangur er flokkaður á byggingartíma, og kolefnisspor minnkað með nýtingu jarðefna á staðnum. Félagið notar einungis vistvæna steypu í sínar byggingar með sem minnst kolefnisspor.