Roðahvarf 34 – 36

MótX ehf. byggir útsýnisíbúðir við Roðahvarf 34 - 36 í Kópavogi, rétt við Vatnsendahæð, með góðu útsýni til austurs.
Roðahvarf 34-36

Roðahvarf 34 – 36

Við Roðahvarf 34 – 36 hyggst MótX ehf. byggja 18 íbúða fjölbýlishús.

Húsið og íbúðirnar verða allar hina veglegustu og er markhópurinn þær fjölskyldur sem eiga einbýlishús í hverfinu en vilja minnka við sig. Framkvæmdir hefjast um mitt ár 2025.

Samkvæmt deiliskipulagi Vatnsendahvarfs er um að ræða uppbygginu í eðlilegu framhaldi af nærliggjandi byggð á svæðinu. Er rík áhersla lögð á gæði grænna svæða, almenningsrýma og dvalarsvæða ásamt góðum tengingum við nærliggjandi náttúru. Ásýnd og yfirbragð hverfisins skal einkennast af vandaðri lágreistri byggð, með fjölbreyttu framboði af íbúðum. Sérstaklega skal huga að gæðum dvalarsvæða innan lóða, með skjólgóðum íverusvæðum og dvalarsvæðum sem snúa á móti sól. Vandað verður til við hönnun og frágang bygginga, og notast við vistvænar lausnir eins og kostur er.

Byggðin í Vatnsendahvarfi er blanda af tveggja til þriggja hæða íbúðarhúsum sem samanstendur af sérbýlis-, klasa- og fjölbýlishúsum.