Roðahvarf 17 – 21
Við Roðahvarf 17 – 21 hyggst MótX ehf. byggja 22ja íbúða fjölbýlishús.
Húsið og íbúðirnar verða allar hina veglegustu og er markhópurinn þær fjölskyldur sem að eiga einbýlishús í hverfinu en vilja minnka við sig. Framkvæmdir hefjast um mitt ár 2025.
Samkvæmt deiliskipulagi Vatnsendahvarfs er um að ræða uppbygginu í eðlilegu framhaldi af nærliggjandi byggð á svæðinu. Er rík áhersla lögð á gæði grænna svæða, almenningsrýma og dvalarsvæða ásamt góðum tengingum við nærliggjandi náttúru. Ásýnd og yfirbragð hverfisins skal einkennast af vandaðri lágreistri byggð, með fjölbreyttu framboði af íbúðum. Sérstaklega skal huga að gæðum dvalarsvæða innan lóða, með skjólgóðum íverusvæðum og dvalarsvæðum sem snúa á móti sól. Vandað verður til við hönnun og frágang bygginga, og notast við vistvænar lausnir eins og kostur er.
Byggðin í Vatnsendahvarfi er blanda af tveggja til þriggja hæða íbúðarhúsum sem samanstendur af sérbýlis-, klasa- og fjölbýlishúsum.
