Hraungata 15 – 19

Hraungata 15 - 19 í Garðabæ eru tvö fjölbýlishús með 28 íbúðum. Gatan tilheyrir Urriðaholti sem er hverfi þar sem vistvæn viðmið eru lögð til grundvallar og taka öll hús í hverfinu mið af því. MótX byggði húsin á árunum 2020 - 2022.

Hraungata 15 – 19

Fjölbýlishúsin að Hraungötu 15 – 19 eru tveggja og þriggja hæða auk kjallara, í allt 28 íbúðir í alls þremur stigahúsum.

Í kjallara eru einkageymslur fyrir hverja íbúð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Húsið er staðsteypt.

Sérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð á fyrstu og annarri hæð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því  að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunnar.

Skipulag Urriðaholts er fyrsta hverfið hér á landi til að hljóta vistvottun samkvæmt vottunarkerfi Breeam Communities. Í vottunarkerfi BREEAM er horft til fimm megin efnisflokka sem miða að því að meta og bæta sjálfbærni hverfisins.

Flokkarnir eru:

  • Samráð og stjórnun
  • Félagsleg og efnahagsleg velferð
  • Auðlindir og orka
  • Landnotkun og vistfræði
  • Samgöngur og aðgengi

Fyrir íbúana þýðir það að gönguleiðir í skóla og leikskóla eru stuttar og öruggar, gert er ráð fyrir mismunandi ferðamátum og götur eru hafðar þröngar í þeim tilgangi að draga úr umferðarhraða. Stutt er í verslun og þjónustu, barnvæn leiksvæði og í óspillta náttúruna.

Fimm víra rafmagnskerfi dregur úr rafmengun m.a. með því að koma yfirtíðni, sem að straumbreytar og ljósdeyfar valda út úr húsum, niður í jörðina og koma um leið í veg fyrir svokallaða „flökkustrauma“. Ljósmengun er svo minni utandyra en það markmið næst með því að hafa þægilega lýsingu utan dyra. Á vetrarkvöldum fá því stjörnubjartar næturnar að njóta sín, sem er ekki algeng sjón í þéttbýli. Ofanvatnslausnir eru sjálfbærar og tryggja hringrás vatns í hverfinu svo lífríki raskist ekki.