Umhverfis- og orkustofun staðfestir Svansvottun á þriðja hluta Hringhamars 9-19

Þann 8. apríl síðastliðinn afhenti Umhverfis- og orkustofnun MótX viðurkenningu til staðfestingar á Svansvottun á þriðja hluta Hringhamars 9-19.

Umhverfis- og orkustofun staðfestir Svansvottun á þriðja hluta Hringhamars 9-19

Þann 8. apríl síðastliðinn afhenti Umhverfis- og orkustofnun MótX viðurkenningu til staðfestingar á Svansvottun á þriðja hluta Hringhamars 9-19 í Hafnarfirði, Hringhamri 17-19.

Það var Lilja Ólafsdóttir, sviðstjóri hjá stofnuninni sem að afhenti Svan Karli Grjetarssyni, framkvæmdastjóra MótX og Þresti Má Sigurðssyni gæðastjóra viðurkenninguna að viðstöddum bæjarstjóranum í Hafnarfirði, Valdimar Víðissyni. Stuðningur og hvatning bæjarins hefur verið ómetanlegur á Svansvottunarvegferð MótX.

Þar með er lokið við að Svansvotta allar 118 íbúðirnar í húsunum þremur. Verkefnið er eitt stærsta byggingaverkefni í flokki fjölbýlishúsa sem að fengið hefur Svansvottun hér á Íslandi.