Neyðarkallinn – ávallt viðbúinn
MótX styrkir Slysavarnarfélagið Landsbjörgu með kaupum á neyðarkallinum eins og mörg undanfarin ár. Neyðarkall björgunarsveita hvert ár er eitt af stóru fjáröflunarátökum sveitanna, og skiptir gríðarlega miklu máli í rekstri þeirra. Neyðarkallinn í ár er straumvatnsbjörgunarmaður, til minningar um Sigurð Kristófer McQuillan Óskarsson sem lést á björgunaræfingu í fyrra. Það var Svanur Karl Grjetarsson, forstjóri, sem að tók við kallinum úr hendi Stefáns Guðna Stefánssonar, fulltrúa Landsbjargar.
Hagnaður af sölu neyðarkallsins rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda og er hann notaður til að efla og styrkja starfið. Í gegnum tíðina hafa fyrirtæki sýnt mikinn skilning á störfum björgunarsveitanna enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu.
