MótX áfram styrktaraðili knattspyrnudeildar HK

MótX hefur undirritað nýjan styrktarsamning við knattspyrnudeild HK, sem gerir fyrirtækið að einum öflugasta bakhjarli félagsins næstu árin.
MótX styrkir knattspyrnudeild HK

MótX áfram styrktaraðili knattspyrnudeildar HK

MótX hefur undirritað nýjan styrktarsamning við knattspyrnudeild HK, sem gerir fyrirtækið að einum öflugasta bakhjarli félagsins næstu árin. Samningurinn markar áframhaldandi og aukinn stuðning MótX við íþróttalíf í Kópavogi, en fyrirtækið hefur verið traustur stuðningsaðili HK um árabil.

Tilefnið er tvíþætt, annars vegar 20 ára afmæli MótX og hins vegar nýjar framkvæmdir í Vatnsendahvarfi, þar sem fyrirtækið hefur fengið úthlutaðar nokkrum lóðum og er að hefja uppbyggingu á svæðinu einmitt um þessar mundir.

Stuðningur við HK var auðvelt val fyrir forsvarsmenn félagsins. HK er ekki bara íþróttafélag, heldur samfélag. Þar er frábært starf unnið með börnum og ungmennum, metnaður og gleði handan allra marka. MótX vill styðja við það góða starf og hluti af því að vera virkur þátttakandi í Kópavogi.