Elliðabraut 12 – 22

MótX byggði á árunum 2018 - 2021 128 glæsilegar útsýnisíbúðir við Elliðabraut 12 - 22 í Norðlingaholti í Reykjavík. Elliðabraut er stærsta einstaka verkefni sem að MótX hefur ráðist í til þessa. Húsin standa vestan við svokallaðan Björnslund og er víðsýnt frá þeim til flóa og fjalla, auk þess sem stutt er í alla útivist.

Elliðabraut 12 – 22

MótX byggði glæsilegar útsýnisíbúðir við Elliðabraut 12 – 22. Um er að ræða sex sjálfstæð hús með opnum svæðum á milli. Húsin tengjast saman með bílageymslu. Húsin voru hönnuð með tilliti til algildrar hönnunar.

Lagt var upp með bjartar og opnar íbúðir. Svæði milli íbúða var hugsað sem útivistarsvæði með skjólgóðum görðum. Djúpgámum var komið fyrir í jaðri lóðar, þar sem möguleiki er á flokkun á sorpi á staðnum. Hönnun lóðar tryggir hljóðlátt og afmarkað útivistarsvæði.