kopavogstund_main

Kópavogstún 10-12

Vandað og vel staðsett fjölbýlishús með lyftu og sérinngangi af svölum, við Kópavogstún í vesturbæ Kópavogs.

Íbúðunum var skilað fullbúnum með gólfefnum ásamt stæði í bílageymslu.

18-25 fm suður og suð-vestur svalir með glerhandriði sem skyggir ekki á útsýni.

Vandaðar eikarinnréttingar með steinborðplötum, eikarhurðum frá Axis, ásamt eikarparketi og vönduðum flísum í forstofu og votrýmum.

Blöndunartæki og handklæðaofn frá Tengi, vönduð eldhústæki frá Siemens.

Álklæddir trégluggar og hurðir. Myndavéladyrasímar.

Árið 2015 heiðruðu bæjaryfirvöld Kópavogs MótX fyrir hönnun og glæsilegan frágang á Kópavogstúni 10-12.